2012-03-16 18:47:04 CET

2012-03-16 18:48:05 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Hampiðjan hf. - Interim information (is)

Ársreikningur Hampiðjunnar hf. fyrir árið 2011


Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur fyrra árs í sviga.



  -- Rekstrartekjur jukust um 9% og voru 42,4 milljónir (39,0 milljónir).
  -- EBITDA af reglulegri starfsemi, var 6,9 milljónir (6,0 milljónir).
  -- Söluhagnaður rekstrarfjármuna var 1,4 milljónir (0 milljónir).
  -- Hlutdeild í hagnaði HB Granda var 3,5 milljónir (0,7 milljónir).
  -- Hagnaður ársins var 7,3 milljónir (2,6 milljónir).
  -- Heildareignir voru 79,5 milljónir (80,3 milljónir).
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 25,6 milljónir (33,7 milljónir).
  -- Eiginfjárhlutfall var 58% (51%).



Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 42,4 milljónir og jukust um 9% frá árinu áður.
 Rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi var 12,2% af rekstrartekjum eða 5,2
milljónir en var 10,7% í fyrra eða 4,2 milljónir.  Fjármunatekjur ásamt
hlutdeild í hagnaði HB Granda að frádregnum fjármagnsgjöldum voru 1,9 milljónir
til tekna en voru 1 milljón til gjalda á fyrra ári. 

Hagnaður ársins, eftir að tillit hefur verið tekið til taps vegna aflagðrar
starfsemi í Namibíu, var 7,3 milljónir en hann var 2,6 milljónir árið 2010. 



Efnahagur

Heildareignir voru 79,5 milljónir í árslok.  Eigið fé nam 46,2 milljónum, en af
þeirri upphæð eru 5,4 milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé tveggja
dótturfélaga.  Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var
í árslok 58% af heildareignum samstæðunnar. 

Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 25,6 milljónum og lækkuðu um 8,1 milljón frá
ársbyrjun. 



Jón Guðmann Pétursson, forstjóri:

„Venjulega er seinni hluti ársins töluvert lakari hjá okkur en sá fyrri, en sú
varð ekki raunin að þessu sinni.  Veruleg aukning var í sölu ofurkaðla á seinni
hluta ársins, ekki síst til olíuiðnaðar, og var afkastageta Hampiðjunnar í
Litháen fullnýtt í þeim vörum allan síðari helming ársins og er reyndar enn. 
Þá var óvenju góð sala seinni hluta ársins hjá móðurfélaginu á veiðarfærum til
bæði makríl- og loðnuveiða.  Dótturfélögin voru öll rekin með jákvæðri afkomu á
árinu og í heildina tekið var rekstrarárangur ársins góður.  Til viðbótar naut
félagið verulegs hlutdeildarhagnaðar frá HB Granda, en hann var 3,5 milljónir
og jókst um 2,8 milljónir frá fyrra ári. 

Hampiðjan seldi á árinu einkaleyfi og vöruheiti tengd toghlerum og var hagnaður
af því 1,4 milljónir.  Þá var dótturfélagið í Walvis Bay í Namibíu selt fyrir
um eina milljón og sölustarfsemi á ofurköðlum, sem áður var á hendi
dótturfélags í Noregi, var flutt til móðurfélagsins á Íslandi.  Helsta
fjárfesting ársins var kaup á stærstu kaðlafléttivél sem smíðuð hefur verið og
er nú verið að ljúka uppsetningu hennar í Litháen.“ 



Reykjavík 16. mars 2012,

Hampiðjan hf.



Ársreikningurinn er á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,  www.hampidjan.is.