|
|||
![]() |
|||
2014-10-30 17:20:37 CET 2014-10-30 17:21:36 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - ÁrsreikningurGóð afkoma Icelandair Group á 3. ársfjórðungi 2014-- Hagnaður eftir skatta nam 85,8 milljónum USD samanborið við 65,3 milljónir USD árið áður. -- EBITDA nam 123,9 milljónum USD samanborið við 102,2 milljónir USD árið áður. -- Heildartekjur jukust um 13%. -- Eiginfjárhlutfall 46% í lok september. -- Handbært fé frá rekstri 5,8 milljónir USD samanborið við 30,3 milljónir USD árið áður. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri: „Millilandaflug félagsins gekk vel á þriðja ársfjórðungi og var afkoma þess mjög góð. Framboð í leiðakerfinu var aukið um 19% frá fyrra ári. Sætanýting var 84,2%, og jókst um 0,7 prósentustig frá fyrra ári. Tæplega 970 þúsund farþegar ferðuðust með félaginu í fjórðungnum og hafa þeir aldrei verið fleiri. Aukin umsvif í millilandaflugi ásamt mikilli fjölgun ferðamanna til Íslands höfðu jákvæð áhrif á aðra starfsemi samstæðunnar. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 85,8 milljónum USD og jókst um 20,5 milljónir USD frá fyrra ári. Fjárhagslega er félagið mjög sterkt og tilbúið til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar, en þegar hefur verið tilkynnt um áætlanir um 12% vöxt í millilandaflugi á næsta ári. Vegna góðs gengis á þriðja ársfjórðungi gerum við nú ráð fyrir að EBITDA ársins 2014 muni nema 150-155 milljónum USD sem er hækkun frá áður útgefinni afkomuspá.“ Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri bubbi@icelandairgroup.is 896 1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála bogi@icelandairgroup.is 665 8801 |
|||
|