2012-05-08 17:31:00 CEST

2012-05-08 17:31:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 12 0815 og RIKV 12 1115


Föstudaginn 11. maí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 12 0815 og RIKV 12 1115 sem eru með gjalddaga 15.
ágúst og 15. nóvember 2012. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 15. maí 2012.

Sótt verður um að RIKV 12 1115 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi miðvikudaginn 16. maí 2012.