2014-07-14 13:16:44 CEST

2014-07-14 13:17:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 28. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.019.389 eigin hluti fyrir
24,4 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími     Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Hlutir í eigu TM eftir  
g                    hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
 7.7.2014  9:40     500.000       24,05     12.025.00          7.500.000        
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------
 7.7.2014  11:23    500.000       23,90     11.950.00          8.000.000        
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------
 9.7.2014  15:15     9.924        24,30      241.153           8.009.924        
--------------------------------------------------------------------------------
11.7.2014  9:57      9.465        24,35      230.473           8.019.389        
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals            1.019.389                24.446.62                           
                                                6                               
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 8.019.389 hluti í félaginu sem samsvarar 38,2% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 212,5 milljónum króna. TM á nú samtals 1,05%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is