|
|||
2010-03-24 17:41:19 CET 2010-03-24 17:42:19 CET REGULATED INFORMATION N1 - FyrirtækjafréttirTilkynning varðandi upplýsingar um ábyrgðir N1 hf. í ársreikningum 2008 og 2009Til áréttingar varðandi ábyrgðir N1 hf. í ársreikningum 2008 og 2009 vill félagið koma eftirfarandi á framfæri: Í ársreikningi 2009 eru ábyrgðir félagsins kr. 12,7 milljarðar sbr. skýringu nr. 19. Komið hefur í ljós að í ársreikningi 2008 eru vantaldar ábyrgðir vegna tengdra aðila að fjárhæð kr. 1,7 miljarður í ársbyrjun, en kr. 3,3 milljarðar í árslok vegna gengisbreytinga. Þessar upplýsingar hafa hvorki áhrif á niðurstöður rekstrar né efnahag félagsins. Rétt þykir að benda á að N1 hf. hefur ekki tekist á hendur nýjar ábyrgðarskuldbindingar á árunum 2008 og 2009. |
|||
|