2017-11-08 09:56:36 CET

2017-11-08 09:57:05 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Eik fasteignafélag hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu níu mánuði ársins 2017


  * Rekstrartekjur tímabilsins námu  5.643 m.kr.
  * Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.696 m.kr.
  * Heildarhagnaður tímabilsins nam 2.410 m.kr.
  * Handbært fé frá rekstri nam 2.281 m.kr. á tímabilinu.
  * Bókfært virði fjárfestingareigna nam 82.784 m.kr. og bókfært virði eigin
    eigna nam 3.689 m.kr. í lok tímabilsins.
  * Matsbreyting fjárfestingareigna nam 1.550 m.kr. á tímabilinu.
  * Vaxtaberandi skuldir námu 54.333 m.kr. í lok tímabilsins.
  * Eiginfjárhlutfall nam 31,2%.
  * Hagnaður á hlut var 0,70 kr.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30.
september 2017 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 8. nóvember
2017.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning fyrstu níu
mánuði ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í
tilkynningunni.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri:

"Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins og var í takt við
áætlanir. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir jókst um 10% milli
ára og leigutekjur jukust einnig á milli ára eða um 11%. Ánægjulegt var að sjá
áhuga fjárfesta á skuldabréfaútboði sem félagið hélt nýverið. Eftirspurn nam
11,5 ma.kr. en félagið seldi fyrir 9,9 ma.kr.

Glæsilegar höfuðstöðvar Vodafone hafa nú opnað að Suðurlandsbraut 8. Ljóst er að
byggingarnar tvær, Suðurlandsbraut 8 og 10, sem og bílastæðahúsið sem myndar
einskonar rós munu gefa Suðurlandsbrautinni nútímalegt og flott útlit."

Rekstur félagsins
Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 og er uppgjörið í
takt við áætlanir stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu níu
mánuðum ársins 2017 námu 5.643 m.kr. og aukast um 13,3% milli ára. Þar af voru
leigutekjur 4.666 m.kr. og tekjur vegna hótelrekstrar 662 m.kr. Rekstrarhagnaður
fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.696 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam
3.022 m.kr. og heildarhagnaður tímabilsins nam 2.410 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og
einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 75,6% á fyrstu níu mánuðum
ársins 2017 samanborið við 76,3% fyrstu níu mánuði ársins 2016.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi
einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu
fjárfestingareigna sem nam 1.550 m.kr á tímabilinu.

Efnahagur félagsins
Heildareignir félagsins námu 89.192 m.kr. þann 30. september 2017. Þar af eru
fjárfestingareignir að virði 82.784 m.kr. sem skiptast í fasteignir í útleigu að
fjárhæð 80.913 m.kr., fasteignir í þróun 1.410 m.kr., byggingarréttir og lóðir
449 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eigin eignir
námu 3.689 m.kr. og er Pósthússtræti 2 (Hótel 1919) fært sem eigin eign þar sem
í fasteigninni er annar rekstur en útleiga fasteigna og er reksturinn í eigu
eins dótturfélags Eikar. Eigið fé félagsins nam 27.851 m.kr. í lok september
2017 og var eiginfjárhlutfall 31,2%. Heildarskuldir félagsins námu 61.341 m.kr.
þann 30. september 2017, þar af voru vaxtaberandi skuldir 54.333 m.kr. og
tekjuskattsskuldbinding 5.548 m.kr.

Uppgreiðsla á EIK 12 01 og nýr skuldabréfaflokkur
Um miðjan október opnaðist heimild til endurfjármögnunar skuldabréfaflokksins
EIK 12 01. Flokkurinn bar 4,3% vexti sem voru umtalsvert hærri en þau
fjármagnskjör sem félaginu hafði boðist í síðustu skuldabréfaútboðum þess.

Í aðdraganda uppgreiðslunnar var haldið vel heppnað skuldabréfaútboð þar sem
boðnir voru til sölu tveir skuldabréfaflokkar, EIK 161023 og EIK 161047.
Heildareftirspurn í báða flokkana nam samtals 11,5 ma.kr. en 9,9 ma.kr. voru
seldir í flokkinn EIK 161047 á ávöxtunarkröfunni 3,6%.  Hollenskt uppboð var á
EIK 161023 en Eik hafnaði öllum tilboðum í hann. Vegin meðalávöxtunarkrafa var
3,61% í uppboðinu. Samhliða þessu voru dregnir rúmlega 2 ma.kr. á
bankafjármögnun sem félagið hafði tryggt sér í aðdraganda útboðsins. Flokkurinn
var svo greiddur upp þann 16. október s.l. og afskráður í kjölfarið.

Arðgreiðslustefna
Félagið greiddi 928 m.kr. í arð til hluthafa þann 27. apríl s.l. enda er það
stefna stjórnar að greiða 35% af handbæru fé frá rekstri hvers árs í arð til
hluthafa. Handbært fé frá rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins nam 2.281 m.kr.

Eignasafn félagsins
Eik fasteignafélag sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði ásamt eignarhaldi
á hótelrekstri. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals tæpa
300 þúsund útleigufermetra. Virði fasteigna félagsins er rúmir 86 ma.kr. og
heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og
26, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Nýi Glæsibær, Turninn í
Kópavogi, Smáratorg 1, Glerártorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu
leigutakar eru Húsasmiðjan, Fasteignir ríkissjóðs, Flugleiðahótel,
Rúmfatalagerinn, Landsbankinn, Síminn, Míla, Deloitte, Vátryggingafélag Íslands
og Fjarskipti (Vodafone).

Eik fasteignafélag fékk allar eignir Slippsins, fasteignafélags ehf. (nú EF14
ehf.), afhentar 1. mars 2017 eins og áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Félagið
fjárfesti í þremur öðrum eignum á fyrri hluta ársins, Miðhrauni 2, Hyrjarhöfða
8 og hæð í Síðumúla 15. Félagið seldi eignarhluta sinn í Melgerði 13, sem var
eina eign félagsins á Reyðarfirði, eignarhluta sinn í Hverafold 1-3 og hluta af
eignarhlut sínum í Bæjarlind 14-16.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 44%. Næst koma
verslunarhúsnæði 26%, hótel 12%, lagerhúsnæði 11%, og veitingahúsnæði 4%. Um
90% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 36% á fjármála- og
viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 22% í miðbæ
Reykjavíkur og 19% í Smáranum - Mjódd. 10% eignasafnsins er á landsbyggðinni,
þar af 9% á Akureyri.

Virðisútleiguhlutfall
Virðisútleiguhlutfall félagsins var 95,6% í lok ársfjórðungsins og hefur það
lækkað um 0,8% frá áramótum.

Kynningarfundur
Opinn kynningarfundur verður haldinn í dag, miðvikudaginn 8. nóvember 2017
klukkan 12:00 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2,
Reykjavík. Boðið verður upp á léttan hádegismat frá kl. 11:30. Garðar Hannes
Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni
kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
Fjárhagsdagatal 2017

  * Ársuppgjör 2017                                        26. febrúar 2018

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2200 /
820-8980


[]