|
|||
2017-02-13 10:00:00 CET 2017-02-13 10:00:00 CET REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 6 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 16.450.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) --------------------------------------------------------------------------- --------------------------------------------------------------------------- 6.2.2017 11:40:37 1.000.000 16,45 16.450.000 Samtals 1.000.000 16.450.000 --------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. Sjóvá átti 70.190.770 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 71.190.770 eigin hluti eða sem nemur 4,56% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 45.892.365 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,94% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 672.050.204 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 130.945.271 hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000 |
|||
|