2015-01-16 13:50:04 CET

2015-01-16 13:51:05 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs


Matsfyrirtækjunum Standard & Poors og Fitch er gert að birta dagsetningar fyrir
útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber reglugerð númer
462/2013. Þessi reglugerð miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi
matsfyrirtækja, bæta matsferlið og auka ábyrgð fyrirtækjanna á lánshæfismati
sem hefur sýnt sig að hafa mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja
Evrópusambandsins njóta. Þar sem aðalgreinandi Moody‘s varðandi lánshæfi
Íslands er ekki staðsettur í ríki Evrópusambandsins þarf fyrirtækið ekki að
birta áætlun fyrir árið. 

Reglugerðin gildir einnig fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en hún
ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. reglugerð
númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum. 

Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra. Matsfyrirtækin
hafa birt dagsetningar 2015 fyrir Ísland sem hér segir: 

Matsfyrirtæki  Dagsetning
S&P            16. janúar
Fitch          30. janúar
S&P            17. júlí  
Fitch          24. júlí