2012-04-13 13:46:00 CEST

2012-04-13 13:46:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 14 0314


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 16 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.978 m.kr. að nafnverði. 11
tilboðum var tekið fyrir 2.888 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,350 (5,11%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 17.
apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 18. apríl 2012.