2017-06-26 11:00:02 CEST

2017-06-26 11:00:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 25 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverð 56.050.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
19.6.2017 11:12:34 1.000.000 18,85 18.850.000
19.6.2017 12:19:10 139.299 18,70 2.604.891
19.6.2017 14:34:32 860.701 18,70 16.095.109
20.6.2017 09:49:33 1.000.000 18,50 18.500.000
              Samtals      3.000.000   56.050.000

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017.

Sjóvá átti 25.136.332 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 28.136.332 eigin hluti eða sem nemur 1,89% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 20.054.800 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,35% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 372.035.285 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, sími 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is