2017-10-10 11:37:09 CEST

2017-10-10 11:37:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lykill fjármögnun hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Útboð á víxlum 11. október 2017


Lykill fjármögnun hf. (áður Lýsing hf.) efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn
11. október 2017. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki
LYKILL180416.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Útboðið verður
með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu
vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og
verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 miðvikudaginn 11. október og uppgjör
viðskipta fer fram þann 16. október 2017. Tilboðum skal skilað á netfangið
markets@arctica.is.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50.
greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir
skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru
birt á vefsíðu félagsins, https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840
4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s:896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf.,
sighvatur@lykill.is, s:540 1700


[]