|
|||
2010-08-30 15:28:45 CEST 2010-08-30 15:29:44 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - ÁrsreikningurAfkoma Landsvirkjunar fyrstu sex mánuði ársins 2010Árshlutareikningur Landsvirkjunar var í dag, 30. ágúst 2010, samþykktur á fundi stjórnar. Reikningurinn er samstæðureikningur sem tekur til Landsvirkjunar og dótturfélaga. Helstu atriði árshlutareiknings janúar til júní 2010 eru þessi: • Handbært fé frá rekstri nam 110 milljónum USD eða um 13,3 milljörðum króna á núverandi gengi. • Hagnaður tímabilsins nam tæpum 16 milljónum USD sem svarar til 1,9 milljarða króna á núverandi gengi. • EBITDA nam 143,8 milljónum USD að teknu tilliti til áhrifa innleystra áhættuvarna tengdum álverði. EBITDA hlutfall er 80% af veltu. • Mat á virði innbyggðra afleiða í tengslum við orkusölusamninga fyrirtækisins lækkaði um 183,2 milljónir USD á tímabilinu en álverð var fremur lágt í lok júní. • Sem fyrr er aðhalds gætt í rekstri og fjárfestingum og áhersla lögð á lausafjárstýringu. o Fjárfestingar voru um 25 milljónir USD á tímabilinu samanborið við 60 milljónir USD á sama tímabili árið 2009. o Afborganir lána voru 98 milljónir USD umfram nýjar lántökur. o Handbært fé í lok júní nam 179 milljónum USD en að auki hefur fyrirtækið aðgang að samningsbundnu veltiláni og er óádreginn hluti þess 282 milljónir USD. Laust fé er því alls um 461 milljón USD eða sem nemur um 55 milljörðum króna. Laust fé ásamt fé frá rekstri dugar til að mæta öllum núverandi skuldbindingum fyrirtækisins út árið 2012. o Helstu kennitölur sýna áframhaldandi jákvæða þróun í rekstri fyrirtækisins. • Heildareignir Landsvirkjunar nema 4,6 milljörðum USD eða um 552 milljörðum króna á núverandi gengi. Nettó vaxtaberandi skuldir nema 2,6 milljörðum USD og hafa lækkað um 263 milljónir USD frá áramótum. • Eigið fé Landsvirkjunar nam 1,6 milljörðum USD eða sem svarar til um 190 milljarða króna á núverandi gengi. Eiginfjárhlutfall var 34,5%. Árshlutareikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) og er hann í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill móðurfélagsins. Samkvæmt IFRS eru innleystar áhættuvarnir vegna álverðstengingar í orkusölusamningum færðar á meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda. Stjórnendur Landsvirkjunar telja gefa gleggri mynd af rekstri fyrirtækisins að færa innleystar álvarnir með tekjum fyrirtækisins og birta einnig rekstrarreikning með þeim hætti í sérstöku yfirliti sem er fremst í árshlutareikningnum. Breytingin hefur ekki áhrif á afkomu, efnahag eða sjóðstreymi, en hún hefur áhrif á einstaka liði innan rekstrarreikningsins. Tekjur samstæðunnar námu 180 milljónum USD á tímabilinu en voru 179 milljónir USD á sama tímabili árið áður að teknu tilliti til áhættuvarna og eru því svipaðar á milli tímabila. Á tímabilinu janúar til júní 2010 gjaldfærði fyrirtækið 4,8 milljónir USD vegna samninga við erlendar fjármálastofnanir vegna álvarna en á sama tímabili 2009 tekjufærði fyrirtækið 40 milljónir USD vegna áhættuvarnarsamninga. Innleystar áhættuvarnir eru færðar meðal fjármunatekna og fjármagnsgjalda í árshlutareikningnum. Þar eru einnig færð vaxtagjöld sem lækkuðu úr 45,9 milljónum USD á fyrstu 6 mánuðum ársins 2009 í 39,4 milljónir USD á sama tímabili í ár, einkum vegna lækkunar millibankavaxta í Bandaríkjunum og Evrópu. Rekstrarkostnaður án afskrifta og virðisrýrnunar nam 36 milljónum USD á tímabilinu en var 34,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 70 milljónum USD á tímabilinu án áhættuvarna en voru 27,9 milljónir USD á sama tímabili árið áður sem skýrist aðallega af lækkun á gangvirði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði og jákvæðum gjaldeyrismun. Gangvirðisbreytingar og gengishagnaður eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 2,2% á tímabilinu en þeir voru um 2,5% árið áður. Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar framkvæmdir nema að fjármögnun þeirra sé tryggð. Fyrirspurnir og heimsóknir frá hugsanlegum orkukaupendum sýna að eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun er mikil og vonast fyrirtækið eftir því að það skili sér í hærra orkuverði í nýjum sölusamningum. Nánari upplýsingar veitir Kristján Gunnarsson, starfandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000. |
|||
|