2015-02-24 14:43:47 CET

2015-02-24 14:44:47 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Fyrirtækjafréttir

Garðabær – stækkun skuldabréfaflokks


Garðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, mun þann 27. febrúar
næstkomandi bjóða til sölu skuldabréfið GARD 13 1 sem er stækkanlegur
skuldabréfaflokkur sveitarfélagsins. Sala hinna nýju skuldabréfa fer fram í
samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar 19. febrúar og verður salan með
útboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu skuldabréf allt að 400 milljónir
króna að nafnvirði. Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka. Tekið verður við tilboðum til klukkan 14:00
föstudaginn 27. febrúar n.k. Garðabær áskilur sér rétt til að hafna öllum
tilboðum að hluta til eða í heild. Gert er ráð fyrir skuldabréfin verði tekin
til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland þann 12. mars n.k. 



Allar nánari upplýsingar varðandi skuldabréfin og skuldabréfaútboðið eru
veittar af Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.