2015-02-24 15:12:42 CET

2015-02-24 15:13:42 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 20. mars 2015 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00


Dagskrá:



  1. Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu
     fulltrúa.
  2. Skýrsla stjórnar félagsins. 
  3. Starfsemi félagsins á liðnu ári.
  4. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.
  5. Skýrsla skoðunarmanna.
  6. Tillaga stjórnar  um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.
  7. Umræður um skýrslu stjórnar, skýrslu um starfsemi félagsins, ársreikning og
     tillögu um vexti og arð af stofnsjóði.
  8. Afgreiðsla ársreiknings og tillagna um vexti og arð af stofnsjóði.
  9. Kosin stjórn félagsins.
 10. Kosning endurskoðenda og skoðunarmanna.
 11. Ákvörðun um þóknun stjórnar, skoðunarmanna og greiðslur til fulltrúa.
 12. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, löglega upp borin.





Tillögur frá félagsaðilum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að vera komnar
skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Framboð
til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr.  27. gr.
samþykkta félagsins. 





Tillögur:



Liður 6 í dagskrá: Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.


Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði
11%  arður af B-deild stofnsjóðs þar af er verðbótaþáttur 1% skv. 1. mgr. 14.
gr. samþykkta félagsins, alls kr. 19.808.177,- eða 0,11 kr. á hvern útgefin
hlut. Jafnframt að reiknaðir verði 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild
stofnsjóðs, alls kr. 15.797.339,-  Arðleysisdagur er 23. mars og
arðréttindadagur er 25. mars.  Greiðsludagur arðs er 17. apríl n.k.