2012-03-30 16:36:56 CEST

2012-03-30 16:37:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun kaupir hlut Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar og Orkuveitu Húsavíkur í Þeistareykjum ehf.


Eftir kaupin fer Landsvirkjun með allt hlutafé í Þeistareykjum ehf.

Landsvirkjun og Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. hafa náð samkomulagi um
kaup Landsvirkjunar á 0,087% hlut félagsins í Þeistareykjum ehf.   Einnig hefur
verið gengið frá samkomulagi við Orkuveitu Húsavíkur ohf. um kaup á 3,2% hlut
þeirra í félaginu.  Fyrir hlutina greiddi Landsvirkjun samanlagt kr.
201.202.856,-. 

Eftir kaupin fer Landsvirkjun með allt hlutafé (100%) í Þeistareykjum ehf.

Þeistareykir ehf. hafa frá stofnun félagsins árið 1999 staðið að borunum og
rannsóknum til hagnýtingar á orku úr jörðinni Þeistareykjum í Þingeyjarsveit.
Rannsóknum og undirbúningi að jarðhitavirkjun hefur miðað vel á síðustu árum. 

Á svæðinu er gert ráð fyrir allt að 200 MW jarðhitavirkjun samkvæmt
fyrirliggjandi mati á umhverfisáhrifum. Gert er ráð fyrir að virkjað verði í
áföngum en þegar hefur verið aflað gufu fyrir einni vélasamstæðu. Verkhönnun er
lokið og samið hefur verið við verkfræðistofurnar Mannvit og Verkís um
útboðshönnun, útboðsgagnagerð og lokahönnun en ekki hefur verið tekin ákvörðun
um tímasetningu á framkvæmdum. 



Frekari upplýsingar veita:

Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar í síma 5159000,

Guðrún Erla Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur í síma 4640900 og

Ólína Arnkelsdóttir, stjórnarformaður Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar í síma
8658882.