2013-02-28 11:41:35 CET

2013-02-28 11:42:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Íbúðalánasjóði: Engar ákvarðanir hafa verið teknar


Vegna þeirrar umræðu sem verið hefur um stöðu og framtíðarhlutverk
Íbúðalánasjóðs vill Íbúðalánasjóður taka eftirfarandi fram: 

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að framtíðarfyrirkomulagi íbúðalána sjóðsins
og fjármögnun nýrra útlána og er sú vinna langt komin. Einnig er starfandi
starfshópur á vegum velferðarráðuneytisins um framtíðarhorfur og
framtíðarhlutverk sjóðsins og er þeim starfshópi ætlað að skila áfangaskýrslu
fyrir lok marsmánaðar. 

Tekið skal fram að ekki hafa verið teknar neinar ákvarðanir um framangreind
atriði sem snúa að lánaframboði, fjármögnun þeirra útlána eða að mögulegri
breytingu á hlutverki Íbúðalánasjóðs. Slíkar ákvarðanir verða kynntar þegar þær
liggja fyrir. 

Samhliða birtingu ársuppgjörs Íbúðalánasjóðs sem áætluð er í viku 12 er stefnt
að því að kynna nánar stöðu og horfur í rekstri sjóðsins eftir því sem frekast
er unnt.