|
|||
![]() |
|||
2018-01-09 11:33:07 CET 2018-01-09 11:34:08 CET REGULATED INFORMATION Byggðastofnun - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarSkuldabréfaútboð – BYG 18 1Mánudaginn 8. janúar 2018 hélt Byggðastofnun útboð á nýjum skuldabréfaflokki BYG 18 1. Útboðið var með hollensku sniði. Uppgjör viðskipta verður föstudaginn 12. janúar 2018. Alls bárust tilboð að nafnverði kr. 5.890.000.000. Boðin var ávöxtunarkrafa á bilinu 2,14% til 2,48%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 2.000.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,35%. Skuldabréfin bera jafnar greiðslur sem greiðast hálfsárslega og bera því 2,34% fasta verðtryggða vexti. Lokagjalddagi þeirra er 15. september 2032. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland fyrir lok janúarmánaðar 2018. Íslandsbanki hf. hafði umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.
Nánari upplýsingar veitir:
|
|||
|