2008-01-10 17:29:34 CET

2008-01-10 17:29:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Breyting í framkvæmdastjórn SPRON


Breyting í framkvæmdastjórn SPRON

Valgeir Baldursson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fjárhagssviðs SPRON
og mun taka við af Hörpu Gunnarsdóttur sem sinnt hefur starfinu frá nóvember
2006 jafnhliða því að vera framkvæmdastjóri þjónustusviðs sem hún gegnir áfram. 

Valgeir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk MBA prófi frá Háskóla
Reykjavíkur 2007. Valgeir hóf störf hjá SPRON í mars 2006 í fyrirtækjaráðgjöf
hjá SPRON Verðbréfum.  Frá október 2007 hefur Valgeir gengt starfi
framkvæmdastjóra fjárfestinga SPRON.  Áður en Valgeir hóf störf hjá SPRON var
hann eigandi og framkvæmdastjóri Álits ehf. frá 2003-2005. 

Valgeir tekur við starfi framkvæmdastjóra fjárhagssviðs þann 15. janúar nk.