|
|||
![]() |
|||
2008-01-15 11:08:37 CET 2008-01-15 11:08:37 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirKynningarfundur vegna afkomu Straums fyrir árið 2007Kynningarfundur vegna afkomu Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straums) fyrir árið 2007 Straumur birtir afkomu fyrir árið 2007 þriðjudaginn 29. janúar. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2. Forstjóri Straums, William Fall, og fjármálastjóri Straums, Stephen Jack, kynna afkomu bankans og svara spurningum. Kynningarfundurinn fer fram á ensku. Kynningarfundurinn hefst stundvíslega klukkan 08:30 en boðið verður upp á morgunverð frá klukkan 08:00. Dagskrá fundar: 08:00 Húsið opnar og boðið upp á morgunverð 08:30 William Fall, forstjóri Straums og Stephen Jack, fjármálstjóri Straums, kynna afkomu bankans fyrir árið 2007 09:15 Spurningum úr sal svarað 09:30 Fundarlok Fundarstjóri er Georg Andersen, forstöðumaður fjárfestatengsla Straums. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að fundi loknum á heimasíðu Straums www.straumur.com Net-útsending Fundinum verður varpað í beinni útsendingu á netinu á slóðinni www.straumur.com/kynning Nánari upplýsingar: Georg Andersen Fjárfestatengsl Sími: 585 6707 og 858 6707 |
|||
|