2008-01-17 09:53:21 CET

2008-01-17 09:53:21 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

- Yfirtökutilboð London Acquistion B.V. í hlutafé Stork N.V. er skuldbindandi


Frestur til þess að samþykkja tilboð London Acquistion B.V. í allt hlutafé
Stork N.V. lauk 14. janúar 2008 með því að hluthafar 98% hluta í Stork N.V.
samþykktu tilboðið.  Jafnframt hafa önnur skilyrði yfirtökunnar verið uppfyllt
og hafa því London Acquistion B.V. og Stork N.V. lýst yfir að yfirtökutilboðið
í Stork N.V. sé skuldbindandi. 

Með þessu hefur eitt af skilyrðunum fyrir kaupum Marel Food Systems hf. á Stork
Food Systems verið uppfyllt. Önnur skilyrði eru umsögn Stork Works Council og
heimild samkeppnisyfirvalda fyrir kaupunum. Gert er ráð fyrir að niðurstaða
liggi fyrir um miðjan mars 2008. 

Virði eignarhlutar Marel í LME í lok þriðja ársfjórðungs var miðað við
lokagengi bréfa í Stork N.V. upp á 45,70, en sala hlutar Marel í LME miðaðist
við gengið 48,40. Jafnframt féll til vaxta- og viðskiptakostnaður vegna
eignarhlutarins á fjórða ársfjórðungi.