2008-01-21 11:08:55 CET

2008-01-21 11:08:55 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbanki Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Kaupþing banki hf. semur við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt.


Kaupþing banki hf. hefur samið við Landsbanka Íslands hf. um viðskiptavakt með
hlutabréf í Kaupþingi banka hf. fyrir eigin reikning Landsbankans. 
 
Samningurinn felur í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð
í hlutabréf Kaupþings banka hf. í því skyni að markaðsverð skapist á
hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.  Tilboð
eru sett fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður
er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins. 

Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi:

Landsbankinn skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í
hlutabréf Kaupþings banka hf. að lágmarki 40.000 hlutir (hver hlutur er 10,0
kr. að 
nafnverði) og skulu tilboð vera á því gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert
skipti. 

Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá
síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. 

Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankinn skuldbindur sig til að vera
þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 400.000.000,- að markaðsverði. 

Landsbankinn mun hefja viðskiptavaktina þann 21. janúar 2008.

Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy,
ir@landsbanki.is eða í síma 410 7200 / 861 1440.