2008-01-31 15:50:28 CET

2008-01-31 15:50:28 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Glitnir banki hf. - Ársreikningur

Glitnir birtir ársreikning 2007


Leiðrétting á fréttaflokki
                Afkoma Glitnis banka fyrir árið 2007
        Hagnaður samstæðu 27,7 milljarðar króna eftir skatta
                      Arðsemi eigin fjár 19,3%

Helstu niðurstöður:
*       Hreinar rekstrartekjur jukust um 17,2% milli ára
*       Hagnaður fyrir skatta á 4. ársfjórðungi nam 3,8 milljörðum
  króna miðað við 10,4 milljarða á 3. ársfjórðungi
*       Hreinar vaxtatekjur á 4. ársfjórðungi voru 11,9 milljarðar og
  hækkuðu um 54,6% frá 4. ársfjórðungi 2006
*       Þóknanatekjur á 4. ársfjórðungi ársins námu 10,6 milljörðum
  og jukust lítillega frá sama ársfjórðungi 2006
*       52% af hagnaði bankans fyrir skatta á árinu 2007 myndaðist af
  starfsemi utan Íslands
*       Hagnaður á hlut var 0,19 krónur á fjórðungnum og 1,86 krónur
  yfir árið samanborið við 2,68 krónur árið 2006
*       Heildareignir í árslok voru 2.949 milljarðar en voru 2.246
  milljarðar í ársbyrjun 2007
*       Eignir í stýringu drógust saman um 6,7% frá fyrri
  ársfjórðungi, vegna sölu bankans í Glitnir Property Holding, en
  heildarvöxtur yfir árið nam 91% og eru nú 936 milljarðar króna
*       Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 11,2 %, þar af var
  A-hlutfall 8,1 %

Tíðindi af tímabilinu
*       Tekjur af kjarnastarfsemi eru traustar, jukust um 36% á milli
  ára
*       Glitnir hefur skipað sér í fremstu röð á sviði
  hlutabréfamiðlunar á Norðurlöndunum
*       Óhagstæðar markaðsaðstæður hafa neikvæð áhrif á afkomuna á 4
  ársfjórðungi
*       Kostnaðarhlutföll yfir ásættanlegum mörkum, má rekja að hluta
  til einskiptiskostnaðar sem fellur til á árinu
*       Traust lausafjárstaða við erfiðar markaðsaðstæður
*       Aukinn alþjóðlegur vöxtur byggður á sérþekkingu

Lárus Welding, forstjóri Glitnis. "Þegar ég lít yfir afkomutölurnar
er ánægjulegt að sjá svo góðan vöxt í hreinum vaxta- og þóknanatekjum
eins og raun ber vitni. Þóknanatekjur bankans voru stöðugar á árinu
og námu samtals um 37,6 milljörðum króna, sem er um 42% aukning frá
árinu áður. Ég er einnig ánægður að sjá tekjur af kjarnastarfsemi
bankans vaxa á nýjan leik þar sem vöxturinn nam um 21% á
ársgrundvelli auk þess sem traust útlánasafn bankans tryggir okkur
góðar vaxtatekjur á þessu ári.""Markaðssyllur Glitnis, sjávarútvegur, jarðhiti og þjónustuskip við
olíuiðnaðinn hafa vaxið sem hluti af lánabók bankans, eða úr 11% árið
2006 í 13% 2007. Með því að byggja upp sérþekkingu á þessum þremur
sviðum erum við í raun að fjárfesta í framtíðarvexti bankans. Þá
hefur Glitnir einnig skipað sér í fremstu röð á sviði
hlutabréfamiðlunar á Norðurlöndunum.""Á árinu 2007 hefur Glitnir fjárfest í ytri og innri vexti og
endurspeglast sá vöxtur m.a. í auknum kostnaði í tengslum við
samþættingarverkefni, opnun nýrra starfsstöðva auk kostnaðar sem féll
til vegna stjórnendaskipta. Við höfum hinsvegar nú gert
skipulagsbreytingar sem miða að því að auka hagkvæmni og
kostnaðaraðhald og gera rekstrarábyrgð, ákvarðanatöku og boðleiðir
skýrari undir forystu stjórnenda á hverju markaðssvæði fyrir sig.""Markaðsaðstæður síðustu mánaða hafa verið öllum fjármálafyrirtækjum
erfiðar. Glitnir er hins vegar í góðri stöðu til að takast á við
núverandi aðstæður með yfir 6 milljarða evra í lausafé og sterkan
undirliggjandi tekjugrunn. Lánasafnið okkar er áhættudreift og byggt
á traustum og góðum eignum.""Ég er fullviss um að þessar áherslur í stefnu Glitnis skapa okkur
nauðsynlegar undirstöður fyrir frekari vöxt á öllum afkomusviðum
bankans", sagði Lárus Welding.



Nánari upplýsingar veita:
Lárus Welding

Forstjóri

sími: 440 4005


Alexander K. Guðmundsson
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
sími: 440 4656

Vala Pálsdóttir
Forstöðumaður fjárfestatengsla
sími: 440 4989 eða vp@glitnir.is

Reikninga Glitnis er að finna á slóðinni www.glitnir.is.