2008-01-31 18:15:25 CET

2008-01-31 18:15:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Exista hf. - Ársskýrsla/ársreikningur

Afkoma Exista á árinu 2007


Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista birti í dag uppgjör fyrir árið 2007. 

Helstu niðurstöður fyrir árið 2007
•	Hagnaður eftir skatta 573,9 milljónir evra (ISK 50 milljarðar) og jókst um
34.5% 
•	Hagnaður á hlut 5,11 evrur (ISK 448) og jókst um 18.8%
•	Arðsemi eigin fjár var 23% á ársgrundvelli
•	Heildareignir námu 8 milljörðum evra (ISK 731 milljarði) í lok 2007 og jukust
um 82% á árinu 
•	Eigið fé var 2,4 milljarðar evra (ISK 216 milljarðar) og jókst um 25%
•	Eiginfjárhlutfall var 29,6% í lok tímabilsins

Afkoma á síðasta ársfjórðungi
•	Afkoma eftir skatta var neikvæð um 295,6 milljónir evra (ISK 26 milljarðar)
•	Miklar sviptingar á fjármálamörkuðum höfðu veruleg áhrif á virði eigna.
•	Umtalsverður einskiptiskostnaður féll til við það að starfsemi á sviði eigin
viðskipta og stöðutöku var lögð niður og eignasöfn seld 

Frá áramótum:
•	Í lok janúar 2008 hafði Exista aðgang að tryggu lausafé sem nemur
endurfjármögnunarþörf félagsins vel fram til ársins 2009, eða í 69 vikur. 
•	Exista kynnir í dag breytingar á skipulagi félagsins. Markmið breytinganna er
að undirstrika enn frekar fjármálaþjónustu sem kjarnastarfsemi félagsins. Tvö
ný stoðsvið, Rannsóknir og Fjárstýring, hafa verið sett á laggirnar, en eigin
viðskipti hafa verið lögð niður. 

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður:
„Á tímum mikilla sviptinga á fjármálamörkuðum nýtur Exista góðs af traustum
rekstri dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Óvenjulega skarpt verðfall á
mörkuðum hefur reynt á undirstöður félagsins og hefur Exista sýnt mikinn styrk
við þær aðstæður. Við erum undir það búin að takast á við ytri sveiflur og
högum rekstri félagsins og áhættustýringu í samræmi við það. Lausafjárstaða er
mjög góð og undirstöður eru traustar. Stjórnendur félagsins gera sér grein
fyrir að hluthafar okkar hafa fundið fyrir miklum sveiflum í verði hlutabréfa
að undanförnu, eins og reyndar fjárfestar víða um heim. Hins vegar teljum við
að Exista hafi skapað sér afar athyglisverða stöðu á norrænum fjármálamarkaði
sem feli í sér mikil tækifæri fyrir félagið til framtíðar.“ 


Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir:
Sigurður Nordal
framkvæmdastjóri samskiptasviðs
sími: 550 8620 (ir@exista.com)


Um Exista
Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu,
meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt
alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group,
Kaupþingi banka, Bakkavör Group, Storebrand og Skiptum. Markmið Exista er að
nýta fjárhagslegan styrk sinn til uppbyggingar á starfsemi sinni hér á landi og
erlendis. Upplýsingar um Exista hf. og uppgjörið er að finna á vefsíðu
félagsins, www.exista.com