2008-02-01 10:55:14 CET

2008-02-01 10:55:29 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Marel Food Systems hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Erik Kaman - fjármálastjóri Marel Food Systems


Marel Food Systems hefur ráðið Erik Kaman sem fjármálastjóra (CFO)
samstæðunnar. Hann tekur sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar og tekur til
starfa í apríl næstkomandi. Fram að þeim tíma verður fjármálastjórn Marel
Food Systems áfram í höndum Kristjáns Þorsteinssonar. Kristján, sem hefur gegnt
því starfi sl. níu ár, mun taka við starfi framkvæmdastjóra fjármögnunar og
áhættustýringar hjá félaginu. 

Erik Kaman  hefur starfað hjá Stork síðastliðin 16 ár, nú síðast sem
fjármálastjóri Stork Arerospace Industrie, en þar áður sem framkvæmdastjóri
stefnumótunar og fjármála hjá móðurfélagi Stork samstæðunnar.