2010-02-12 14:46:15 CET

2010-02-12 14:47:15 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel selur rekstur Carnitech A/S í Stövring


Marel hefur komist að samkomulagi við fyrirtækið American Industrial
Acquisition Corporation (AIAC) um sölu á rekstri Carnitech A/S í Stövring,
Danmörku, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi Marel. AIAC er óskráð
iðnaðarsamsteypa sem hefur það að langtímamarkmiði að byggja upp sterk
fyrirtæki. Dótturfélag AIAC sem er kaupandi eignanna sem og skuldanna mun taka
upp nafnið Carnitech. 

Undanskilin frá samningnum er fyrrum starfsemi Carnitech í laxaiðnaði og á
sviði frystibúnaðar, sem og starfsemi Carnitech í Bandaríkjunum, sem er nú
rekin undir merkjum og yfirstjórn Marel. Marel mun leggja niður noktun á
Carnitech vörumerkinu á næstu 12 mánuðum. 

Salan er mikilvægur liður í áætlun Marel um sölu eigna utan kjarnastarfsemi og
mun félagið nú einbeita sér eingöngu að aukinni arðsemi og innri vexti í
kjarnastarfsemi, en hún snýr að vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi, auk
frekari vinnslu. 

Kaupandinn tekur yfir eignir og skuldir tengdar rekstri Carnitech í Stövring en
fasteignir félagsins í Stövring eru ekki innifaldar í samningnum.
Samningsaðilar hafa gert langtíma leigusamning vegna húsnæðisins en kaupandinn
fær forkaupsrétt að því. Bókfært tap á sölunni nemur 8 milljónum evra fyrir
skatt, aðallega vegna afskrifta viðskiptavildar og endurmetinna eigna, og hefur
verið tekið tillit til þess í ársreikningum fyrir 2009 

Theo Hoen, forstjóri Marel:
„Salan á Carnitech í Stövring, sem er síðasta stóra einingin utan
kjarnastarfsemi, er mjög jákvætt skref fram á við fyrir Marel. Nú getum við
snúið okkur alfarið að því að styrkja stöðu okkar sem markaðsleiðtogi í
kjarnastarfsemi okkar. Ég er þess fullviss að Carnitech muni takast að treysta
stöðu sína til framtíðar með nýjum eigendum eftir að hafa gengið í gegnum
erfitt tímabil á árinu 2009.“ 

Starfsemi Carnitech snýr fyrst og fremst að þróun, framleiðslu og sölu á búnaði
fyrir matvælaiðnaðinn en þær vörur sem fyrirtækið býður upp á falla utan við
kjarnastarfsemi Marel eins og hún hefur verið skilgreind. Vöruframboðið
samanstendur m.a. af lyfti- og affermingarbúnaði, sérhönnuðum afgreiðslu- og
geymslulausnum og tækjum til framleiðslu á þunnum plötum. Árið 2009 stóð
einingin fyrir 3,7%% af tekjum Marel, með veltu upp á 20 milljónir evra. 


Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á
heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á
fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim
og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60
umboðsmanna og dreifingaraðila.