|
|||
2008-03-05 10:44:44 CET 2011-09-16 12:27:17 CEST Hampiðjan hf. - Aðalfundaboð- Aðalfundur verður haldinn föstudaginn 14. mars 2008Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn í fundarsal að Flatahrauni 3, Hafnarfirði, föstudaginn 14. mars 2008 og hefst kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55.gr hlutafélagalaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega. Stjórn Hampiðjunnar hf. |
|||
|