|
|||
2009-04-28 06:30:00 CEST 2009-04-28 06:31:12 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur hf. - Uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2009Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2009 * Sala var 77,2 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 13%, eða 4% mælt í staðbundinni mynt * EBITDA var 12,9 milljónir Bandaríkjadala, dróst saman um 26%* mælt í staðbundinni mynt * EBITDA hlutfall var 17%, samanborið við 20%* fyrir sama tímabil í fyrra * Hagnaður tímabilsins var 7,6 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 6,7 milljónir á sama tímabili árið 2008 * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 1,79 bandarísk sent, samanborið við 1,58 sent á sama tímabili í fyrra * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut, að teknu tilliti til kauprétta, var 2,98 bandarísk sent, óbreytt miðað við sama tímabil árið 2008 Jón Sigurðsson, forstjóri:"Salan á fyrsta ársfjórðungi var minni en við væntum og dróst saman um 4%, mælt í staðbundinni mynt. Efnahagsþrengingar á öllum okkar helstu mörkuðum hafa áhrif á söluna á fyrsta ársfjórðungi. Sala á stoðtækjum er í takt við vöxt markaðarins, en sala á spelkum og stuðningsvörum er minni en áætlað var í Bandaríkjunum. Við höfum gert töluverðar breytingar í stjórnun á sölu og markaðsmálum sem við væntum að muni skila árangri. Á árinu 2009 eru margar nýjar og spennandi vörur væntanlegar og voru tvær nýjar vörur kynntar á fyrsta ársfjórðungi." *Ath. að undanskildum einskiptistekjum á fyrsta ársfjórðungi 2008 The press release including tables, the Investor Presentation Q1 2009 and the Financial Statement Q1 2009 can be downloaded from the following links: |
|||
|