2022-06-23 21:20:39 CEST

2022-06-23 21:20:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Almenna leigufélagið ehf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Alma íbúðafélag hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 23. júní 2022


Alma íbúðafélag hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 23. júní 2022

Alma íbúðafélag hf. lauk í dag útboði á skuldabréfum í flokknum AL280629, sem er gefinn út undir útgáfuramma félagsins.

Skuldabréfin eru verðtryggð og með lokagjalddaga þann 28. júní 2029. Þau bera 1,5% nafnvexti og eru afborganir greiddar sem um 15 ára jafngreiðsluferli fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar eru greiddar. Skuldabréfin eru veðtryggð samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins.

Útboðið var haldið með hollensku fyrirkomulagi, þar sem öll samþykkt tilboð buðust fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið var. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.440 milljónir króna. Tilboðum að fjárhæð 1.160 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 1,8% var tekið. Heildarstærð flokksins verður 1.160 milljónir króna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 30. júní 2022 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Arion banki hf. hefur umsjón með sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri Ölmu íbúðafélags hf., í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is