2019-08-22 16:29:25 CEST

2019-08-22 16:29:27 CEST


Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Árshlutaupplýsingar

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2019


Reykjavík, 22. ágúst 2019.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma á fyrri árshelmingi 2019

  • Tekjur á fyrri árshelmingi 6.009 m.kr. og hækka um 2% milli ára.
  • 57 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 81 m.kr. hagnaður árið áður.
  • EBITDA afkoma var 406 m.kr. en 376 m.kr. árið áður.
  • Eigið fé 5.311 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 52%.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2019 var 57 m.kr.  Á sama tímabili árið áður var 81 m.kr. hagnaður.  Eigið fé Sláturfélagsins er 5.311 m.kr. í lok júní.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 6.009 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2019, en 5.881 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um rúm 2%.  Aðrar tekjur voru 160 m.kr. en 25 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 3.110 m.kr. en 2.981 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 1.635 m.kr. og hækkaði um tæp 3%, annar rekstrarkostnaður var 1.017 m.kr. og hækkaði um 6% og afskriftir voru 235 m.kr. og hækka um tæp 12%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 171 m.kr., en 166 m.kr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 406 m.kr.  en var 376 m.kr. á sama tíma í fyrra.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 109 m.kr., en voru 64 m.kr., á sama tímabili í fyrra.  Reiknaður tekjuskattur nam 5 m.kr., en 21 m.kr. árið áður.  Hagnaður af rekstri tímabilsins var 57 m.kr. en 81 m.kr. á sama tímabili árið áður. Minni hagnaður skýrist af lakari afkomu dótturfélaga.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 398 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2019, samanborið við 375 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2018. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní  voru 10.218 m.kr. og eiginfjárhlutfall 52% en 59% árið áður.  Veltufjárhlutfall var 1,9 á fyrri hluta ársins 2019, en 2,2 árið áður.

Í upphafi árs innleiddi samstæðan IFRS 16 um leigusamninga. Áhrif á liði rekstrarreiknings eru þau að afskriftir hækka um 15,4 m.kr. og vaxtagjöld hækka um 17,8 m.kr. en rekstrargjöld lækka um 27,4 m.kr. Í efnahagsreikning var færð 732,0 m.kr. leiguskuldbinding og nýtingarréttur leigueigna að fjárhæð 675,8 m.kr. 

Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2019 fyrir 193 m.kr. en 420 m.kr. á sama tímabili árið áður.  Fjárfest var í fasteignum fyrir 31 m.kr. og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 162 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2019 var í aprílmánuði greiddur 13,26% arður af B-deild stofnsjóðs alls 24 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 17 m.kr.

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2019
með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu ársins 2019 þann 20. febrúar 2020.

Staða og horfur
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 52% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 1,9. Langtímaskuldir í lok júní 2019 voru 1.942 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 88 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma.

Afkoma Sláturfélagsins versnaði milli ára vegna lakari afkomu dótturfélaga. Gert er ráð fyrir að afkoma þeirra batni á síðari árshelmingi í kjölfar hagræðingaraðgerða sem unnið hefur verið að.

Gert er ráð fyrir að innflutningur á fersku kjöti hefjist um áramót og búast má við að það hafi neikvæð áhrif á innlenda kjötframleiðslu og afkomu afurðafélaga. Áfram verður unnið að því að aðlaga rekstur samstæðunnar að breyttu rekstrarumhverfi, m.a. með því að leggja áherslu á sérstöðu og gæði innlendrar framleiðslu.

Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum.  Aukin vélvæðing og öflug vöruþróun hefur styrkt grundvöll félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði. Samt sem áður er reiknað með erfiðum aðstæðum á kjötmarkaði á næstu árum.

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sýna á markaði með nýjum vöruflokkum sem ganga vel. Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst upp á undanförnum árum og er að þjónusta bændur með allar helstu rekstrarvörur.

Fjárhagsdagatal
Júlí – desember 2019 uppgjör                  20. febrúar 2020
Aðalfundur 2020                                     20. mars 2020

Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is

Viðhengi