|
|||
2011-08-21 16:49:50 CEST 2011-08-21 16:50:50 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirTilkynning vegna væntanlegrar stefnumótunar íslenskra stjórnvaldaHitaveita Reykjavíkur og síðar Orkuveita Reykjavíkur hafa unnið að þróun jarðhitanýtingar í Bitru á Hengilssvæðinu frá því um 1990. Þrjár rannsóknarholur hafa verið boraðar. Margvíslegar aðrar umhverfisrannsóknir hafa verið gerðar og opinbert mat á umhverfisáhrifum virkjunar hefur legið fyrir frá árinu 2008. Í drögum að þingsályktunartillögu iðnaðarráðherra um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, sem styðjast við Rammaáætlun um vernd og nýtingu vatnsafls og jarðhita, er jarðgufunýting í Bitru sett í verndarflokk. Bókfært virði eigna og rannsókna OR á svæðinu nemur 785 m.kr. Verði tillagan samþykkt óbreytt hvað þetta atriði varðar kemur þessi fjárhæð til afskrifta að mestu leiti. |
|||
|