2011-04-25 20:01:06 CEST

2011-04-25 20:02:07 CEST


Islandic English
Marel hf. - Fjárhagsdagatal

Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2011 - Kynningarfundur 28. apríl 2011


Marel hf. boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem
kynnt verður uppgjör fyrsta ársfjórðungs ársins 2011. 

Theo Hoen, forstjóri, Erik Kaman, fjármálastjóri og Sigsteinn Grétarsson,
forstjóri Marel ehf. munu kynna uppgjörið. 

Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl kl. 8:30 í húsnæði
félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ. 

Boðið verður upp á kynningu á nýstárlegum tækjabúnaði í beinni útsendingu frá
sýningarrými Marel í Boxmeer í Hollandi. 

Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast

Morgunverður er frá kl. 8:00.