|
|||
2009-08-20 18:53:39 CEST 2009-08-20 18:54:39 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - ÁrsreikningurLeiðrétting - 6 mánaða uppgjör 2009 - Frétt birt 2009-08-20 18:44:17Leiðrétting: Lykiltölur í viðhengi vantaði. Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar nam hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2009 tæplega 47,3 milljónum USD eða um 6 milljörðum króna á núverandi gengi. Árshlutareikningurinn er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og er í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar. Handbært fé frá rekstri nam rúmlega 103,6 milljónum USD og eigið fé í lok tímabilsins nam rúmlega 1,4 milljörðum USD. Helstu stærðir árshlutareiknings samstæðu Landsvirkjunar (fjárhæðir í þúsundum Bandaríkjadala): Sjá viðhengi. Tekjur samstæðunnar námu 139 milljónum USD á tímabilinu en voru 239,6 milljónir USD á sama tímabili árið áður. Nemur lækkunin um 100 milljónum USD og stafar einkum af lækkun álverðs, sem var mjög hátt á fyrri helmingi síðasta árs en lækkaði síðan hratt, og lækkun krónunnar gagnvart USD. Tekjulækkunin hefur minni áhrif á afkomu fyrirtækisins en ætla mætti vegna áhættuvarna. Á tímabilinu janúar til júní 2009 fékk fyrirtækið greiddar 40 milljónir USD frá erlendum fjármálastofnunum vegna álvarna en á sama tímabili 2008 greiddi fyrirtækið 35,7 milljónir USD vegna áhættuvarnarsamninga. Innleystar áhættuvarnir eru færðar meðal fjármagnsliða. Þar eru einnig færð vaxtagjöld sem lækkuðu úr 91,3 milljónum USD á fyrstu 6 mánuðum ársins 2008 í 45,9 milljónir USD á sama tímabili í ár, einkum vegna lækkunar millibankavaxta í Bandaríkjunum og Evrópu. Afkoma Landsvirkjunar ræðst að verulegu leyti af gangvirðisbreytingum innbyggðra afleiða tengdum orkusölusamningum fyrirtækisins og þróun á gengi en hluti langtímaskulda er í annarri mynt en starfrækslugjaldmiðli samstæðunnar. Jákvætt gangvirði afleiða sem fært er til eignar í lok júní 2009 nemur rúmlega 187 milljónum USD og er þá búið að draga frá neikvætt gangvirði þeirra afleiðusamninga sem fyrirtækið hefur gert. Áhrif gangvirðisbreytinganna eru færð í rekstrarreikningi. Lausafjárstaða Landsvirkjunar er góð en í lok júní nam handbært fé tæplega 129 milljónum USD. Fyrirtækið hefur einnig aðgang að 308 milljóna USD veltiláni sem fyrirtækið getur nýtt sér hvenær sem er. Sjóðsstaða að viðbættu ónotuðu bankaláni í lok júní nam því samtals 437 milljónum USD. Fyrirtækið hefur þannig tryggt sér fjármögnun út árið 2011. Til að tryggja enn frekar lausafjárstöðu Landsvirkjunar hafa fyrirtækið og ríkissjóður gert sérstakan viðbúnaðarsamning. Samningurinn er þannig að Seðlabankinn mun afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn en þó því aðeins að fyrirtækið hafi áður fullreynt allar aðrar fjármögnunarleiðir. Fjárhæð samningsins er að hámarki 300 milljónir USD og rennur hann út 1. júlí 2011. Í lok júní námu heildareignir fyrirtækisins tæplega 4,6 milljörðum USD og eiginfjárhlutfall var 31,2%. Horfur um rekstur Landsvirkjunar eru allgóðar fyrir allt árið 2009, einkum ef álverð helst á því bili sem nú er, en álverð hefur hækkað verulega frá því að það fór lægst í mars sl. Gengisþróun og þróun álverðs munu þó sem fyrr ráða miklu um afkomu ársins. Árshlutareikningur Landsvirkjunar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009 var samþykktur á fundi stjórnar þann 20. ágúst 2009. Nánari upplýsingar veitir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000. |
|||
|