2017-08-31 18:00:58 CEST

2017-08-31 18:00:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landfestar ehf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Landfestar ehf.: Árshlutauppgjör fyrstu sex mánuði ársins 2017


·           Rekstrartekjur tímabilsins námu 1.418 m.kr.

·           Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 899 m.kr.

·           Heildarhagnaður ársins nam 525 m.kr.

·           Handbært fé frá rekstri nam 670 m.kr.

·           Bókfært virði fjárfestingareigna nam 26.432 m.kr.

·           Bókfært virði eigin eigna nam 3.532 m.kr.

·           Matsbreyting var jákvæð um 250 m.kr.

·           Vaxtaberandi skuldir námu 15.043 m.kr.

·           Eiginfjárhlutfall nam 41,8%.

·           Hagnaður á hlut var 0,32.



Árshlutareikningur Landfesta ehf. var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 31.
ágúst 2017. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og
dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa kannað
reikninginn.

Rekstrartekjur ársins námu 1.418 m.kr fyrstu sex mánuði ársins 2017 samanborið
við 1.036 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2016. Rekstrarhagnaður fyrir
matsbreytingu og afskriftir fyrri hluta árs 2017 nam 899 m.kr. samanborið við
818 m.kr.á fyrstu sex mánuðum ársins 2016. Heildarhagnaður fyrstu sex mánuði
ársins 2017 nam 525 m.kr. en hann var 208 m.kr. á sama tímabili árið 2016.
Fjárfestingareignir námu 26.432 m.kr. þann 30. júní 2017 og eignir til eigin
nota 3.532 m.kr. Handbært fé frá rekstri nam 670 m.kr. á fyrri hluta ársins
2017. Matsbreyting var jákvæð á fyrstu sex mánuðum ársins 2017 og nam 250 m.kr.
Vaxtaberandi skuldir námu 15.043 m.kr. í lok júní 2017 samanborið við 14.964
m.kr. í árslok 2016. Eiginfjárhlutfall nam 41,8%. Þá var hagnaður á hlut  0,32
en var 0,13 á sama tímabili árið 2016.

Fasteignirnar við Pósthússtræti 2 sem hýsa Hótel 1919 eru flokkaðar sem eignir
til eigin nota þar sem í fasteignunum er annar rekstur en útleiga fasteigna og
reksturinn er í eigu dótturfélags Landfesta. Eigin eignir samstæðunnar námu
3.532 m.kr. í lok júní árið 2017 og eru eignirnar við Pósthússtræti 2 einu eigin
eignir samstæðunnar.

Landfestar er eitt af fimm dótturfélögum í samstæðu Eikar fasteignafélags hf.
Fasteignir félagsins eru um 36 talsins, telja rúma 106 þúsund útleigufermetra,
leigueiningar eru um 170 og fjöldi leigutaka er yfir 100. Helstu fasteignir
félagsins eru Pósthússtræti 2, Borgartún 21, 21a og 26 og Álfheimar 74 (Nýi
Glæsibær).

Landfestar ehf. gaf út skuldabréfaflokkinn LF 14 1 í júní 2014. Í desember 2014
var skuldabréfaflokkurinn skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Staðfesting
endurskoðanda á útreikningum útgefanda LF 14 1 á skilmálum skuldabréfaflokksins
eru meðfylgjandi tilkynningu þessari. Samkvæmt staðfestingu endurskoðanda
stóðust allir skilmálar skuldabréfaflokksins LF 14 1 miðað við dagsetninguna
30.6.2017.



Fjárhagsdagatal 2017

Ársuppgjör Landfesta ehf. 2017 verður birt í viku 9, 2018.


Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2209 /
820-8980


[]