2011-03-24 16:28:26 CET

2011-09-16 12:24:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 8. apríl 2011 og hefst kl. 16:00.


Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík,
föstudaginn 8. apríl 2011 og hefst kl. 16:00. 


Á dagskrá fundarins verða:


  1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
  2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
     hlutafélagalaga.
  3. Breytingar á samþykktum félagsins, en megin efni þeirra breytinga er
     eftirfarandi:
     a.  Breyting á heimili félagsins, verður: Skarfagarðar 4, Reykjavík.
     b.  Lenging á lágmarks fresti til að boða aðalfund og til framlagningar á
     gögnum fyrir hluthafa fyrir aðalfund, úr einni viku í  tvær.c.  Að
     hluthafar sem ráða minnst 1/20 hlutafjárins geta krafist þess að boðað
     verði til hluthafafundar í stað 1/10 áður.
     d.  Að sett verði ákvæði um sérstakt hæfi stjórnarmanna þannig að
     starfsmenn, stjórnarmenn og hluthafar samkeppnisaðila, og félaga sem eru
     tengd samkeppnisaðila, sem og aðilar sem eru nákomnir slíkum aðilum, megi
     ekki setjast í stjórn félagsins. Að stjórnin úrskurði um það hvort framboð
     uppfylli formskilyrði og hvort frambjóðendur séu hæfir til að setjast í
     stjórn félagsins. Úrskurði stjórnar um höfnun á framboði má skjóta til
     hluthafafundar

4. Önnur mál, löglega upp borin.

Dagskrá, endanlegar tillögur, nákvæm útlistun á tillögum um breytingar á
samþykktum, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf
aðalfundar. 

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. 

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega.