2011-04-15 17:34:31 CEST

2011-09-16 12:26:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda 29. apríl 2011


Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár.
  2. Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
  3. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
  4. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
  5. Kosning stjórnar félagsins.
  6. Kosning endurskoðenda skv. 21. gr.
  7. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
  8. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
  9.  Önnur mál, löglega upp borin.


Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30.

Tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 29. apríl 2011:

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur HB Granda hf. haldinn 29. apríl 2011 samþykkir að greiddur verði 20%
arður (0,20 kr. á hlut) vegna ársins 2010, alls að fjárhæð 339.606.745 kr.
Arðurinn verði greiddur 13. maí 2011. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður
fylgir bréfunum er 29. apríl 2011, þ.e. viðskipti á þeim degi koma fram í
hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum  4. maí 2011. Arðleysisdagur er 2.
maí 2011. 

Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár er kr. 800.000, formaður fái þrefaldan
hlut. 

Kosning stjórnar

Framboðsfrestur rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um
frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveim dögum fyrir
aðalfund. 

Kosning endurskoðanda

Endurskoðunarfélag: KPMG ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.
Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki
yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera
hæst 15% yfir síðasta þekkta söluverði á First North markaðinum áður en kaup
eru gerð. 

Tillaga um breytingar á samþykktum

Núverandi:

                                     14.gr.

Stjórn félagsins skal kveðja til hluthafafundar, þegar hún telur þess þörf, svo
og samkvæmt fundaráælyktun eða þegar endurskoðandi eða hluthafar, sem ráða yfir
minnst 1/10 hlutafjárins, krefjast þess skriflega. 

Tillaga:

                                     14.gr.

Stjórn félagsins skal kveðja til hluthafafundar, þegar hún telur þess þörf, svo
og samkvæmt fundaráælyktun eða þegar endurskoðandi eða hluthafar, sem ráða yfir
minnst 1/20 hlutafjárins, krefjast þess skriflega. 



14. gr. samþykkta verði að öðru leyti óbreytt