2013-05-10 22:30:00 CEST

2013-05-10 22:30:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HS Orka hf. - Ársreikningur

HS Orka hf leggur fram árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2013



Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins
fyrir fyrsta ársfjórðung 2013. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum.
Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

·EBITDA er áfram öflug og er alls um 781 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2013 en
var 786 m.kr. á sama tímabil 2012. 

·Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok mars 2013 eða um 54%.

·Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er
neikvæð um 942 milliónir. Þar vegur þyngst lækkun afleiðna (framtíðarvirði
orkusölusamninga sem tengjast álverði) um 2.756 m.kr Á móti komi gengishagnaður
upp á 936 m.kr. 

·EBITDA er góð og tekjur hækka um 6% eða um 106 m.kr. og námu 1.947 m.kr. í lok
ársfjórðungsins en voru 1.841 m.kr. á sama tímabili árið 2012. Að sama skapi
hækkar rekstrarkostnaður um 10% eða sem nemur 111 m.kr. milli þessara tímabila
Nokkrar ástæður eru fyrir þessari aukningu tekna. Munar þar mest um aukna sölu
á smásölumarkaði en lækkandi álverð dregur svo úr tekjuaukningunni á móti.
Orkukaup hafa aukist nokkuð og flutningskostnaður hækkað vegna breytinga á
gjaldskrá Landsnets. Þá hefur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður hækkað, fyrst
og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál
á Grundartanga og hækkunar lífeyrisskuldbindingar. 

·Frekari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860
5208.