|
|||
2024-04-15 22:00:00 CEST 2024-04-15 22:00:02 CEST REGULATED INFORMATION Solid Clouds hf. - Boðun hluthafafundarAðalfundur Solid Clouds hf. 30. apríl 2024Boðað er til aðalfundur í Solid Clouds hf. Í höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi, þriðjudaginn 30. apríl 2024, kl. 16:00. Dagskrá fundarins: Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá og með kl. 15:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 14:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið investors@solidclouds.com. Umboðsmaður sem hyggst skrá sig með tölvupósti þarf að framvísa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang. Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd enda framvísi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint. Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir fundinn, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið investors@solidclouds.com í síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn. Að lokinni dagskrá fundarins verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum Solid Clouds hf. |
|||
|