2008-07-08 16:20:08 CEST

2008-07-08 16:20:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fjárhagsdagatal

Kynning á afkomu Straums á öðrum ársfjórðungi 2008



Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur") birtir uppgjör
annars ársfjórðungs 2008 miðvikudaginn 30. júlí næstkomandi. Athygli
er vakin á að um er að ræða breytingu frá áður auglýstri dagsetingu,
sem var 31. júlí.

Kynningarfundur verður haldinn sama dag á Hilton Reykjavík Nordica að
Suðurlandsbraut 2 í sal H&I. William Fall forstjóri og Stephen Jack
fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer
fram á ensku.

Fundurinn hefst klukkan 9:30 en boðið verður upp á léttar veitingar
frá 9:00.

Dagskrá:

9:00 Húsið opnar og boðið upp á léttar veitingar
9:30 William Fall forstjóri og Stephen Jack fjármálastjóri kynna
uppgjörið og svara spurningum úr sal
10:30 Fundarlok

Fundarstjóri er Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og
markaðssviðs.

Hægt verður að nálgast kynningarefni sem birt verður á fundinum á vef
Straums, www.straumur.com, að fundinum loknum.

Fundurinn verður sendur út beint á netinu á slóðinni
www.straumur.com/webcast. Einnig verður hægt að horfa á upptökuna
eftir fundinn.
Nánari upplýsingar veitir:
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs
netfang: georg.andersen@straumur.net
sími: 585 6707
farsími: 858 6707