|
|||
2023-03-23 18:49:33 CET 2023-03-23 18:49:33 CET REGULATED INFORMATION Hagar hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarHagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 23. mars 2023Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA230928. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 2.660 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 8,80-9,20%. Tilboðum að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnvirði var tekið á 8,98% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 30. mars 2023. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Matei Manolescu, Fossar fjárfestingabanki hf., matei.manolescu@fossar.is, s: 522 4000. Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, geg@hagar.is |
|||
|