2016-03-07 17:26:33 CET

2016-03-07 17:26:33 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

REITIR: Útboð á skuldabréfum 10. mars


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 10. mars
næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum REITIR151244 og
REITIR151124 sem báðir eru verðtryggðir með jöfnum greiðslum og veðtryggðir með
fyrirliggjandi almennu tryggingarfyrirkomulagi félagsins. 

Fjárfestingabankasvið Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu. Heildarstærð
útboðsins getur verið allt að 4,4 milljarðar kr. Útboðið verður með hollenskri
aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem
tekið er í hvorum flokki. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50.
greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, lokaskilmálar og
önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu
félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf.
hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu
grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. Viðauki við
grunnlýsingu, með vísun í áður birtar tilkynningar, verður birtur á sömu
vefsíðu áður en ný skuldabréf í framangreindum flokkum verða tekin til
viðskipta. 

Nánari upplýsingar veitir:
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669
4416.