2014-06-24 15:16:39 CEST

2014-06-24 15:17:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Eimskip tekur við nýju skipi í Kína


Eimskip tók í dag við nýju skipi, Lagarfossi, í Kína. Samningur var gerður um
smíði tveggja skipa í júní 2011. Í ljósi þess að verkinu seinkaði var samið um
tæplega 11 milljóna dollara afslátt frá upphaflegu samningsverði skipanna.
Viðræður eru í gangi um afhendingartíma seinna skipsins sem mun skýrast á
þriðja ársfjórðungi. 

Við skipinu tók skipstjóri þess, Guðmundur Haraldsson, ásamt 11 manna íslenskri
áhöfn. 

Á leið sinni til Íslands mun Lagarfoss hafa viðkomu í kínversku hafnarborginni
Qingdao til að lesta gáma, m.a. fyrir viðskiptavini félagsins í tilefni af
nýjum fríverslunarsamningi Íslands og Kína. Skipið mun einnig flytja 200 nýja
frystigáma sem félagið festi kaup á í Kína. Jafnframt verða fluttir gámar til
Rotterdam fyrir erlenda viðskiptavini. 

Skipið mun sigla um 11 þúsund sjómílur á leið sinni til Rotterdam sem svipar
til vegalengdarinnar á milli Norður- og Suðurpólsins. 

Áætlað er að Lagarfoss verði í Rotterdam 12. ágúst næstkomandi og í Reykjavík
þann 17. ágúst. 

Lagarfoss er 875 gámaeiningar að stærð, þar af með tengla fyrir 230 frystigáma.
Burðargeta skipsins er um 12 þúsund tonn, það er 140,7 metrar á lengd, 23,2
metrar á breidd og ristir 8,7 metra. Tveir 45 tonna kranar eru á skipinu. 

Stjórnhæfni skipsins er góð, en það er m.a. búið öflugum skut- og bógskrúfum og
er sérstaklega styrkt fyrir íssiglingar, með ísklassa 1A. 

Lagarfoss mun leysa Selfoss af á gulu leiðinni, en það skip mun fara í önnur
verkefni. 

Lagarfoss er sjöunda skipið sem ber þetta nafn hjá félaginu. Lagarfoss I var
þriðja skipið sem Eimskip eignaðist og var það í eigu félagsins frá 1917 til
1949. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Mjög ánægjulegt er að sjá til lands í þessu stóra verkefni. Smíði á sérhæfðu
gámaskipi mun styrkja þjónustu við viðskiptavini félagsins á
Norður-Atlantshafi. Viðræður um afhendingu seinna skipsins eru nú í gangi og
niðurstöðu er að vænta á þriðja ársfjórðungi, en ljóst er að afhendingin mun
ekki verða fyrr en á árinu 2015.“ 

Um Eimskip

Eimskip rekur 51 starfsstöð í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið
hefur á að skipa um 1.400 starfsmönnum, þar af um 800 á Íslandi. Um helmingur
tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita
framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða
víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.