2014-06-24 15:30:53 CEST

2014-06-24 15:31:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Fyrirtækjafréttir

HB Grandi – Ákveðið að ganga til samninga um smíði ísfisktogara


Stjórn HB Granda hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við tyrknesku
skipasmíðastöðina Celiktrans Deniz Insaat Ltd. um smíði á þrem ísfisktogurum á
grundvelli tilboðs frá skipasmíðastöðinni. 

Heildarsamningsupphæðin mun liggja nærri 6,8 milljörðum ÍKR (rúmum 44 milljónum
EUR). Áætlað er að gangi samningar eftir muni fyrri tvö skipin verða afhent á
árinu 2016 en það þriðja árið 2017. 

Fyrir er tyrkneska skipasmíðastöðin með tvö uppsjávarskip í smíðum fyrir HB
Granda. 



Nánari upplýsingar gefur Vilhjálmur Vilhjálmsson í síma 550-1000

Sjá einnig frétt á heimasíðu félagsins þann 13.3.2014 þar sem tilkynnt er að
félagið hugi að endurnýjun ísfisktogara.