2014-06-24 17:54:49 CEST

2014-06-24 17:55:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor’s (S&P’s) staðfestir mat á fjárhagslegum styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) BBB-


Standard & Poor's (S&P) hefur staðfest mat sitt á fjárhagslegum styrkleika TM.
Fjárhagsleg styrkleikaeinkunn félagsins er BBB- en það er sama einkunn og S&P
hefur veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins. 

TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra
tryggingafélaga.  Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á
erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins. 

Meðfylgjandi er fréttatilkynning S&P frá 20. júní s.l. um niðurstöður matsins á
TM. 

Í henni kemur fram að matið byggi meðal annars á sterku eiginfjárhlutfalli og
góðri afkomu á síðustu árum. 



Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM

S: 515-2609

sigurdur@tm.is