|
|||
2014-12-09 18:38:01 CET 2014-12-09 18:39:02 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfumArion banki hf. lauk í dag þriðjudaginn 9. desember útboði á tveimur nýjum flokkum sértryggðra skuldabréfa til sjö og fimmtán ára. Í heild bárust tilboð upp á 10.340 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir samtals kr. 6.360 milljónir. Í skuldabréfaflokki til fimmtán ára var tilboðum tekið fyrir kr. 5.220 milljónir á ávöxtunarkröfunni 3,50% og í skuldabréfaflokki til sjö ára var tilboðum tekið fyrir kr. 1.140 milljónir á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs. Stefnt er á að flokkarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi nú í desember. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|