2014-12-09 18:38:01 CET

2014-12-09 18:39:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum


Arion banki hf. lauk í dag þriðjudaginn 9. desember útboði á tveimur nýjum
flokkum sértryggðra skuldabréfa til sjö og fimmtán ára. Í heild bárust tilboð
upp á 10.340 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir samtals kr. 6.360
milljónir. Í skuldabréfaflokki til fimmtán ára var tilboðum tekið fyrir kr.
5.220 milljónir á ávöxtunarkröfunni 3,50% og í skuldabréfaflokki til sjö ára
var tilboðum tekið fyrir kr. 1.140 milljónir á ávöxtunarkröfunni 3,60%.
Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs. Stefnt er á að
flokkarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi nú í desember. 



Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.