2013-10-08 18:37:23 CEST

2013-10-08 18:38:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði


Íslandsbanki  hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur
að  hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að  nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað
að  boðið var  í magn  á fyrirfram  ákveðnu verði,  á 6,20% flötum vöxtum (verð:
96,9608).

Tilboðum  var tekið að fjárhæð 1.350.000.000 að nafnvirði. Alls eru útistandandi
víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 8.850.000.000 krónur.

Bréfin  voru seld  til breiðs  hóps fjárfesta.  Stefnt er  að töku  víxlanna til
viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. október næstkomandi.



Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
440 3187 / 844 3187.

Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma
440 3925. 

[HUG#1734415]