|
|||
2009-07-01 13:10:36 CEST 2009-07-01 13:11:30 CEST REGULATED INFORMATION Hf. Eimskipafélag Íslands - FyrirtækjafréttirEimskip leggur fram beiðni um heimild til nauðasamningaHf. Eimskipafélag Íslands lagði fram beiðni um heimild til nauðasamningsumleitana hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Áform þessa efnis voru kynnt á aðalfundi félagsins í gær, 30. júní 2009 Félagið óskaði jafnframt í morgun eftir því við Nasdaq OMX Ísland að hlutabréf og aðrir fjármálagerningar félagsins verði teknar úr viðskiptum í kauphöll Nasdaq OMX á Íslandi. Hluthafar Eimskips eru í dag 20.000 talsins. |
|||
|