2012-05-03 18:00:00 CEST

2012-05-03 18:00:04 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Í tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 17. apríl  sl. kom fram í
útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags
3. maí. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
102,090153 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 11. maí 2012 (krafa 3,00%).1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).

1 Hreint verð (e. clean price) er 100,00.