2016-04-29 10:39:00 CEST

2016-04-29 10:39:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

HAMPIÐJAN HF. BÝÐUR EIGNARHLUT SINN Í HB GRANDA HF. TIL SÖLU


Í tengslum við kaup Hampiðjunnar hf. á hlutafé í P/F Von í Færeyjum, hefur
Hampiðjan hf.  í dag ákveðið að bjóða til sölu hlutafé sitt í HB Granda hf.,
kt. 541185-0389 til heimilis að Norðurgarði 1, Reykjavík, en sala hlutafjárins
mun fara fram með útboði. Hampiðjan hf. hefur nú þegar tryggt fulla fjármögnun
kaupanna á P/F Von, en hefur engu að síður áhuga á að kanna möguleikann á að
fjármagna kaupin að hluta til eða í heild með andvirði sölu þess hlutafjár í HB
Granda hf. sem nú er í eigu félagsins. 

Samkvæmt ofangreindu verða boðnir til sölu alls 160.074.981 hlutir í HB Granda
hf. sem nú eru í eigu Hampiðjunnar hf. Er hver og einn hlutanna 1 króna að
nafnverði. Samsvara hlutirnir 8,79% af skráðu hlutafé HB Granda hf. 

Hampiðjan hf. hefur ráðið fjárfestingabankasvið Arion banka hf. til að hafa
umsjón með framkvæmd útboðsins. 

Lágmark hvers tilboðs í útboðinu verður 500.000 hlutir í HB Granda hf., en
lágmarksgengi í útboðinu verður 35,6 krónur á hlut.  Tilboðum skal skila á
sérstöku tilboðsblaði sem fjárfestar geta nálgast hjá umsjónaraðila útboðsins. 

Tilboðsfrestur rennur út klukkan 16.00 (GMT) þann 3. maí 2016 og verður
tilkynnt um niðurstöðu útboðsins í fréttakerfi Nasdaq kauphallar eigi síðar en
klukkan 9.30 (GMT) þann 4. maí 2016. Nánari upplýsingar um framkvæmd og
tilhögun útboðsins og útboðsskilmála gefur að finna í meðfylgjandi viðhengi. 

Með vísan til c-liðar, 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. gr. laga nr. 108/2007
um verðbréfaviðskipti verður ekki gefin út lýsing vegna útboðsins. 

Athygli fjárfesta er vakin á því að stjórnarformaður Hampiðjunnar hf.,
Vilhjálmur Vilhjálmsson, er jafnframt forstjóri HB Granda hf. og að einn
stjórnarmaður Hampiðjunnar hf., Kristján Loftsson, er einnig stjórnarformaður
HB Granda hf. Jafnframt er Kristján stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Vogunar
hf. sem á 37,61% hlut í Hampiðjunni hf. og 33,51% hlut í HB Granda hf. og
formaður stjórnar Fiskveiðafélagsins Venus hf., sem á 14,59% eignarhlut í
Hampiðjunni hf. og 0,65% eignarhlut í HB Granda hf. Vogun hf. er að nær öllu
leyti í eigu Hvals hf., þar sem Fiskveiðafélagið Venus hf. er stærsti
hluthafinn með 39,5% eignarhlut.  Loks eru þeir Vilhjálmur og Kristján báðir
hluthafar í HB Granda hf. og Hampiðjunni hf. í eigin nafni. 



Nánari upplýsingar veita:

Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar hf. í síma 664 3361 og

Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstöðumaður markaðsviðskipta á
fjárfestingabankasviði Arion banka hf., í síma 856-7170.