|
|||
2015-04-15 18:17:45 CEST 2015-04-15 18:18:35 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Stækkun á erlendri skuldabréfaútgáfuÍslandsbanki hefur stækkað skuldabréfaútgáfu sína að fjárhæð 150 m. sænskra króna á gjalddaga 13. febrúar 2019. Heildarstærð flokksins verður nú 450 m. sænskar krónur. Skuldabréfið sem er til fjögurra ára ber fljótandi vexti, 310 punkta ofan á þriggja mánaða Stibor en viðbótarútgáfan var seld á verðinu 100,48. Kaupendur voru fjárfestar frá Skandinavíu og meginlandi Evrópu. Skuldabréfið er skráð í Kauphöllina á Írlandi. Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/ Umsjónaraðili útboðsins var Pareto Securities AB í Stokkhólmi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1911541] |
|||
|